Vefverslun

Vefverslun

Blandað andalifrarpaté - Mousse de Foie Gras (50%)

Mousse de Foie Gras frá Labeyrie er blandað andalifrarpaté, með 50% úrvals andalifur. Berist fram með ristuðu brauði eða léttsöltu kexi, fíkjusultu eða lauksultu frá Labeyrie. Örlítið kryddsalt frá Labeyrie skerpir bragðgæðin.

Báðar stærðinar koma í handhægum dósum.

2.450 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Andaleggir - fulleldaðir

Andaleggirnir koma fulleldaðir samkvæmt uppskrift sem tilheyrir fornri franskri matargerðarlist. Tilvalið til að eiga í búrinu því ekki tekur nema 10-15 mínútur að hita leggina og slá þannig upp sælkeraveislu á svipstundu. Hægt er að hita leggina upp í ofni, á pönnu eða á grilli – allt eftir þinni hentisemi.

Skoða uppskrift.

Additional DescriptionNánar um vöru
Leggirnir frá Labeyrie eru eldaðir hægt í andafitu í langan tíma til að varðveita bragð og tryggja að kjötið sé meyrt. Confit de Canard er í hópi frægustu veislurétta Frakklands og andaleggirnir frá Labeyrie eru í anda hefðarinnar - himneskir.

5.320 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Andalifrarpaté | Foie Gras (30%)

Andalifrarpaté með 30% bitum af heilli lifur í handhægum og loftþéttum umbúðum. Minni pakkningin er dós en sú stærri er plastpakkningu og henni fylgir sérstakur þráðskeri úr stáli sem auðveldar þér að skera patéið í fallegar sneiðar og tryggir fallega framsetningu á veisluborðinu og er því tilvalin tækifærisgjöf.

4.340 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Sulta

Fíkjusulta og lauksulta eru syndsamlega ljúffengar og algerlega ómissandi meðlæti með Foie Gras. Sulturnar eru frá Labeyrie, sama framleiðanda og flestar vörur sem Zilia hefur á boðstólum. Merkið tryggir gæðin.

320 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Andafita

Andafita inniheldur minna kólestról og þolir um leið hærra hitastig en smjör og önnur eldunarfeiti. Því er hún kærkominn valkostur í nútíma eldhús.

Andafitan fæst í handhægum 320 gr krukkum og einnig í 3500 gr pakkningum.
320 gr krukkan er uppseld eins og er

Additional DescriptionNánar um vöru
Með því að steikja kartöflur upp úr dálítilli andafitu færðu sérlega fallegan gljáa og yfirborðið verður stökkara á kartöflunum. Blandaðu pressaðan og léttsteiktan hvítlauk út í fituna og þá ertu með ‘Gascoigne-smjör’ sem bragðbætir súpur og pottrétti með himneskum hætti og gerir brauðteningana í salatið ómótstæðilega. Grænmeti frá Miðjarðarhafssvæðinu á borð við papriku, kúrbít og eggaldin fá alveg nýjan bragðkeim þegar þær eru steiktar eða grillaðar með andafitu og hvítlauksgeirum.

5.690 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Kryddsalt - fyrir Foie Gras

Kryddsaltið frá Labeyrie er hágæða sjávarsalt sem bragðbætt hefur verið með Sichuan-pipar. Úr verður spennandi bragðbætir sem gerir Foie Gras að alveg nýrri upplifun.

320 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Sjávarsalt | Fleur de Sel de Camargue

Franskt sjávarsalt í hæsta gæðaflokki enda heimsþekkt. Saltið frá Le Saunier de Camargue er handunnið í héraðinu Camargue við Miðjarðarhafsströnd Frakklands. Boxið er innsiglað með loki úr náttúrlegum korki og því fylgir miði sem sýnir nafn saltmeistarans sem hafði umsjón með uppskerunni sem gaf af sér saltkristallana í hverju boxi.

780 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Ostaveisla (frosið)

Ostaveisla (frosið) *20 stykki (250 g):
Litlar tartalettur með geitaosti, Reblochon ostasneiðar
Camembert kökur og Roquefort slaufur.

Kjörið fyrir forrétti, móttökur og veisluborð (hita í ofni á hefbundinn máta í 10 til 12 mín).

1.250 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Litlar tartalettur (frosið)

Litlar tartalettur (frosið) *24 stykki (300 g):
Með tómat, pipar, beikoni & rjóma.

Kjörið fyrir forrétti, móttökur og veisluborð (hita í ofni á hefbundinn máta í 10 til 12 mín).

1.250 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Bragðgóðar bökur (frosið)

Bragðgóðar bökur (frosið) *40 stykki (350 g):
Rauður pipar & tómatar, þriggja osta blanda, hörpuskel, beikon & rjómi.

Kjörið fyrir forrétti, móttökur og veisluborð (hita í ofni á hefbundinn máta í 10 til 12 mín).

1.250 ISKVerð:

Þessi vara er uppseld

Croque Monsieur (frosnar franskar samlokur)

Croque Monsieur (frosnar franskar samlokur) *20 (240 g):
Með skinku & osti.

Kjörið fyrir forrétti, móttökur og veisluborð (hita í ofni á hefbundinn máta í 10 til 12 mín).

1.250 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Macarons (frosnar franskar smákökur)

Macarons (frosnar franskar smákökur)  *12 (120 g),
Þíða við stofuhita í 90 mín.
Með hindberjum, apríkósur og myntu bragði.

Með kaffinu eða sem eftirrétur með mildu bragði & frönsku ívafi

1.290 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Reyktar andabringur - frosnar

Heilreyktar andabringur pakkaðar í loftþéttar umbúðir (325gr.).
Má bera fram kalt í þunnum sneyðum með melónu eða salati, heitt vafið utan um sveskjubita eða fíkju ennfremur má bera fram heitt í sneyðum með t.d. fíkjusultu ( sjá uppskrift á vef ). Mjög heppilegur forréttur eða lystauki.

1.350 ISKVerð:

Þessi vara er uppseld

Andabringur

Franskar andabringur (Magret de Canard) eru heimsþekkt matvara og bringurnar frá Labeyrie eru í hæsta gæðaflokki. Bringurnar bjóða upp á mjög fjölbreytta matreiðslu, hvort heldur er á pönnu, í ofni eða á grilli. Með andabringunum frá Labeyrie töfrar þú fram ekta sælkeraveislu að frönskum hætti. Bringurnar koma frosnar, sérpakkaðar í lofttæmda pakkningu. Meðalþungi er aldrei undir 334 gr. eða 3 stk í kílóið.

Skoða uppskrift

1.470 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Súkkulagði gourmandises

Gourmandises au chocolat (405 g):
Millilag: Ljúffengir macaron bitar með dökku súkkulaðifrauði.

Girnileg terta: (frosið, þíða við stofuhita í 90 mín).

2.050 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Hindberja-núggat gourmandises

Hindberja-núggat gourmandises (410 g):
Millilag: Ljúffengir macaron bitar, léttþeyttur rjómi, núggat og heil hindber.

Girnileg terta: (frosin, þíða við stofuhita í 90 mín).

2.050 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Valhnetu gourmandises

Valhnetu gourmandises: (425 g).
Millilag: Macaron bitar með bragðgóðu valhnetufrauði.

Girnileg terta: (frosin, þíða við stofuhita í 90 mín).

2.050 ISKVerð:

Þessi vara er uppseld

Blandað góðgæti (frosið)

Blandað góðgæti (frosið) *16 (170 g):
Þíða við stofuhita í 40 mín.

Með kaffinu eða sem eftirrétur með mildu bragði & frönsku ívafi

2.410 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Andalifrarpaté | Bloc de Foie Gras

Þessi útfærsla af andalifrarpaté frá Labeyrie er gæðavara á sérlega hagstæðu verði.  Hentar öllum tilefnum og kemur í sérlega handhægum umbúðum, 150 gr dós og 185 gr plastpakkningu í öskju.

3.610 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Heil frönsk önd

Heil frönsk aliönd er sannkallaður veislumatur. Frábær gæði á einstaklega góðu verði. Hver önd er 4.2 kg sem gerir kílóverðið 690 krónur.

Takmarkað magn – verð gildir á meðan birgðir endast.

2.900 ISKVerð:

Þessi vara er uppseld

Andalæri - frosin

Andalæri eru mjög vinsæl í franskri matagerð. Hjá Zilia færð þú uppskriftir og allt til að gera veislurétti. Einfalt er að gera sjálf ykkar Confit de Cannard.
Frosnu analærin frá Labeyrie koma í lofttæmdum pakkningum. Hver pakkning inniheldur 2,4-2,5 kg.

Additional DescriptionNánar um vöru
Svona eldar þú andaleggina frá Labeyrie: Brúnaðu andaleggina á miðlungs hita í ofni upp úr andafitunnni frá Labeyrie. Þannig kemst þú að því hvers vegna andaleggir eru í hópi frægustu sælkerarétta Frakklands

5.260 ISKVerð:
Loading Uppfærsla...

Andalifur - heil | Foie Gras Entier

Heil lifur vafin í gjafaumbúðir. Þessi útfærsla, sem nefnist á frummálinu Foie Gras Entier, er einkum hugsuð fyrir sérstök tilefni enda himneskt bragðið til þess fallið að gera góðu stundirnar enn eftirminnilegri. Foie Gras úr heilli lifur frá Labeyrie er óviðjafnanlegt bragðlaukadekur sem þú átt skilið að prófa.

Stærð: 130 gr.

6.830 ISKVerð:

Þessi vara er uppseld